Fréttir
Póstur hefur legið niðriAug 24 '20
Netpósturinn hefur legið niðri undanfarnar vikur og því hafa skilaboð til póstfanga á nordurnes.is ekki komist til skila.Vinsamlegast sendið aftur póst ef þið fenguð ekkert svar.
Kv,
Stjórnin
Viðhald vegaJul 29 '20
Búið er að bera í veginn frá gatnamótum og upp gilið og er þar nú rennifæri. Einnig voru sett niður tvö hlöss af efni, annað niðri í gili og hitt inni á svæði 2 við lóð nr. 33. Þetta er hugsað til þess að við getum sjálf farið og sett efni í holur og misfellur á okkar sameiginlegu vegum inni á svæðunum. Viljum við hvetja fólk til að draga fram hjólbörur og kerrur og eyða í þetta 1-2 klukkutímum - margar hendur vinna létt verk og væri til hagsbóta fyrir okkur öll. Engin sérstök tímasetning er á þessu, en væri ekki alveg tilvalið að kíkja á þetta um n.k. helgi eða þegar hverjum og einum hentar.
Kveðja, stjórnin
Brenna á laugardagskvöldJul 28 '20
Sæl öll,Við minnum á brennuna okkar n.k. laugardagskvöld kl. 20:00.
Ekki verður boðið upp á veitingar á svæðinu að þessu sinni vegna aðstæðna í þjóðfélaginu (Covid).
Hittumst og höfum notalegt saman. Virðum fjarlægðarmörk.
Bestu kveðjur,
Stjórnin.
Varðandi Fésbókar-grúbbuJul 08 '20
Góðan og blessaðan daginn kæru Norðurnesingar. Hvernig er það með þessar Fésbókar-grúbbur fyrir Norðurnesinga? Er hlekkurinn hér á síðunni ekki inná "gömlu" grúbbuna sem menn virtust vera eitthvað óhressir með ef marka má skilning minn á umræðunni um Fésbókargrúbbur á síðasta fundi. Hvernig kemst maður í nýju grúbbuna sem mér skildist á fundarumræðum að hafi nýlega verið stofnuð? Kær kveðja - Ragnhildur Gyða Magnúsdóttir
Fundargerð aðalfundarJun 14 '20
Fundargerð aðalfundar 2020 er komin á netiðÞað er hægt að nálgast hana hérna.
Stjórnin.
Varðandi vatnsveitugjaldJun 11 '20
Sælt veri fólkið,Við höfum fengið fyrirspurnir í sambandi við 65þ króna rukkun frá félaginu til nýrra meðlima.
Þessi rukkun hefur verið send á nýja eigendur á svæði 3 sem keyptu lóð af hreppnum og er gjaldið vegna kaldavatnsveitu samkvæmt samkomulagi við hreppinn fyrir nokkrum árum.
Fasteignasalan eða hreppurinn hefði átt að upplýsa tilvonandi kaupendur um þetta gjald og okkur þykir miður að það hafi ekki verið gert.
Vinsamlegast snúið ykkur til fasteignasölunnar með spurningar varðandi þetta.
Kveðja,
Stjórnin.
VatnJun 07 '20
Takk fyrir duglega fólk að laga þetta fyrir okkur Kveðjjur Birna og Bjössi nr:32
Leki fundinnJun 07 '20
Það fannst ansi stór leki á svæði 2 og búið er að ná fyrir hann.Við hleyptum aðal vatnsveitu inn og vonum að hún hangi þá uppi núna.
Stjórnin.
Vatnlaust á austur lögnJun 06 '20
Það er verið að vinna að viðgerð á vatnslögn og það þarf að skrúfa fyrir austur-lögn í ca 2 klst núna í dag á meðan á vinnu stendur eða til kl 18.00.Bústaðir á svæði 1 og 2, sérstaklega nr. 30-50 muni vera vatnslausir.
Kveðja
Stjórnin.
Aðalfundur 2020May 23 '20
Kæru félagar
Aðalfundur sumarbústaðafélagsins Norðurnes verður haldinn miðvikudaginn, 3. júní kl 19.30 í Gerðubergi.
Dagskrá:
- Fyrirhugaðar vegaframkvæmdir sumarsins.
- Hækkun á félagsgjaldi í 25þ kr.
- Kynning á fyrirhuguðum vatnsveituframkvæmdum.
- Venjuleg aðalfundarstörf.
Þess ber að geta að það verður nóg pláss í salnum og auka stólar þannig að fólk ætti að geta haft góða fjarlægð sín á milli.
Kveðja,
Stjórnin