Fréttir
Hliðið komið í lag6d
Hlið á efra svæði er komið í lag eftir að hafa staðið opið í tvær vikur. Vandamálið virðist vera að því var ýtt upp handvirkt í rafmagnsleysi og þurfti að losa bómuna og setja það niður aftur.
Fundargerð aðalfundar May 05
Fundargerð aðalfundar hefur verið sett inn á vefinn og er aðgengileg hérna.
- Stjórnin
Aðalfundur 2024Apr 16
Aðalfundur sumarbústaðafélagsins Norðurnes verður haldinn þriðjudaginn, 30. apríl kl 19:00 að Vesturvör 36. Kópavogi.
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf.
- Kynning á stöðu framkvæmda við vatnsveitu
- Fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta árs
- Skipan í nefndir
- Önnur mál
Kveðja,
Stjórnin
Símahlið á neðra svæði (svæði #1) hefur verið tekið í notkun. Sep 11 '23
Númer til að hringja í er 664 9604.
Munið að það þarf að hringja í hliðið til að opna það, sama úr hvorri áttinni er komið að því.
Rétt er að minna á að eftir að bíll er farinn í gegn þá lokast hliðið eftir nokkrar sekúndur. Því er ekki ráðlegt að fleiri en einn bíll fari í gegn i einni bunu.
Fundargerð aðalfundar 2023Jun 21 '23
Fundargerð síðasta aðalfundar var sett hér á vefinn í síðustu viku en ritara láðist að setja frétt á vefinn að því tilefni. Í fundargeðrinni má lesa um ákvarðanir sem teknar voru á fundinum umræðum og hverjir skipa stjórn félagsins. /ssjo
Aðalfundur 2023May 16 '23
Aðalfundur sumarbústaðafélagsins Norðurnes verður haldinn miðvikudaginn, 31. maí kl 19:00 að Vesturvör 36. Kópavogi.
Dagskrá:
- Fyrirhugaðar framkvæmdir sumarsins vegna vatnsveitu.
- Kynning/umræða um kostnaðaráætlun vegna vatnsveitu og fjármögnun
- Framkvæmdagjald fyrir vatnsveitu verður u.þ.b. 180.000 kr á lóð, skipt í 4 greiðslur.
- GSM hlið á svæði 1.
- Breytingar á stjórn.
- Umræða um leiksvæði, vatnsinntök o.fl.
- Skipan í nefndir. (Girðingarnefnd, brennunefnd)
- Venjuleg aðalfundarstörf.
Kveðja,
Stjórnin
Íbúafundur í KjósMay 02 '23
Sveitarstjórn Kjósarhrepps boðar til íbúafundar 25. maí 2023 kl. 17:00 í Félagsgarði og sumarhúsaeigendur eru velkomnir.
Það verður meðal annars rætt um tilvonandi áætlanir að kveikja á hitaveituhemlum og því gæti verið áhugavert að mæta.
Stjórnin
Ný vefsíðaApr 16 '23
Á 10 ára afmæli nordurnes.is síðunnar er komin glæný vefsíða í loftið.
Þessi nýja er einfaldari en sú gamla og nokkuð strípuð eins og er en ég vona að hún eigi eftir að fullnægja hlutverki sínu í gegnum næstu árin. Það vantar ennþá einhverja fítusa frá gömlu síðunni en ég mun bæta þeim við á næstu vikum.
Nonni
Vatnið að klárast í efri byggðumMar 14 '23
Það er að verða vatnslaust I hverfinu. Við hvetjum fólk að fara sparlega með vatnið.
VatnslaustDec 26 '22
Það er vatnslaust í Norðurnesinu.Við viljum biðja fólk með heita potta að passa uppá að það sé ekki kveikt á rennsli á köldu vatni í þá og biðlum til allra að fara varlega með það litla kalda vatn sem gæti komið úr krananum og helst að sturta ekki niður úr klósettum.
Ef þið sjáið einhverja blauta bletti í umhverfi ykkar sem gætu bent til leka, vinsamlegast látið vita.
Stjórnin