Fréttir & Tilkynningar
Kátt í Kjós 19. júlí
09. júl. 2014 20:45
Sveitahátíðin Kátt í Kjós verður haldin í áttunda sinn laugardaginn 19. júlí.
Ungir bændur keppa í margskonar þrautum á túninu við Félagsgarð. Á Reynivöllum verður fróðlegt erindið um Kjósina. Leiðsögn verður um hernámsminjar í Hvítanesi. Kátína mun ríkja á Kaffi Kjós, tryllt trjásala verður að Kiðafelli 3, Gallerí Nana verður opið við Meðalfellsvatn, Keramik-vinnustofa Sjafnar Ólafs verður opin í Eilífsdal og margt fleira verður í boði. Í Félagsgarði mun ilmurinn af nýbökuðum vöfflur kvenfélagskvenna fagna gestum og að sjálfsögðu verður hinn sívinsæli sveitamarkaður í Félagsgarði frá kl. 12-17, með áherslu á íslenskt handverk, þjóðlega hönnun og krásir úr Kjósinni.
Borðapantanir og nánari upplýsingar veitir Sigríður Klara, sigridur@kjos.is , s: 5667100 / 8410013
Dagskráin er hér
Hittumst kát í Kjósinni þann 19. Júlí
Kjósarhreppur
Til baka